Söðuláklæði

Söðuláklæði, glitofið, af venjulegri gerð. Lengd þess 149 cm, og breidd 100 cm. Pottblóm látið spretta inn eftir nálægt endum, við miðjuna, og snúa krónur saman, meðfram langhliðum tveir teinungar, hlykkjóttir, hvor fram af öðrum, og einn við báða enda. Í dúknum er dökkbrún einskefta, en í því sem ofið er, það úr ullarbandi, er bæði dökkrauður litur og ryðrauður, grár, grænn, mosagrænn og gulur. Bryddað er með rauðri einskeftu á endum, og tannaröð gerð á að framanverðu. Teinungarnir við langbrúnir hver á sínum borða og saumað saman. Sjá má slitmerki á.

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
Safnnúmer B: 1963-74
Stærð
149 x 100 cm Lengd: 149 Breidd: 100 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Söðuláklæði