Trafaöskjur

Trafaöskjur úr furu, kringlóttar, ómálaðar, prýddar útskurði á loki, festar saman með tágum og litlum járnnöglum, einnig litlum trélitum. Hæð öll rúml. tíu sm, þvm. um 25 sm. Ein fjöl er í hliðum neðri öskju, fest við enda með tágaseymi, plata í botni og loki, spík er lögð með brún lokplötu allt í kring, og fellur hún yfir bolhliðar, en jaðrar við efra borð plötu, er henni fest saman með tágaseymi. Bolhliðar og rim þessi eru þynnri en lokplata og botn. Hæð lokrimar er mest um 2.6 sm. Útskurðurinn er upphleyptur og flatur. Á miðju loki er gerð sex-arma bátskurðarstjarna, hún umlukt hringgróp, atriði þetta 5.6 sm í þvm. mest. Niður úr miðju gengur lítill trénagli með kúptum haus. Utan um stjörnukringluna liggur um 1.7 sm breiður bekkur með vafteinungsskrauti, stofn teinungsins samfelldur. Þar fyrir utan er all stórgert teinungamynstur, og eru stofnar undnir og krækjast. Yzt er mjór bekkur með kílskorinni tunguröð. Skurður er þokkalegur. Öskjurnar hafa strekkzt og undizt, þær eru blettóttar nokkuð og skrámaðar, plöturnar hafa sprungið þversum, hin neðri tvívegis, trénaglar hafa dottið úr og ryð er á járnnöglum. Botn er sviðinn að neðanverðu. Í bréfi frá sendiherra Íslands í K.höfn, dr. Sigurði Nordal, til þjóðminjavarðar, dags. 23.7.1953, segir m.a.: Inni í öskjum þeim, sem ég sendi nú heim í stjórnarpósti, er kort frá gefandanum, sem skýrir gjöfina. Samkvæmt því ættu öskjurnar að vera skornar út af síra Guðmundi Einarssyni á Breiðabólastað (og Kvennabrekku), og gefur það þeim minjagildi, hvað sem öðru líður. Á kortinu stendur skrifað með hendi gefanda: Denne madkasse (paa jydsk: teju) er udskaaret af Guðmundur Thorsteinssons bedstefar (formentlig hans morfader) og af Muggur for ca. 30 aar siden fordret til Poul Uttenreitter* der önsker at lade den gaa videre til Den Islandske Stats samlinger, for at tingen saaledes kan komme paa sin rette plads. Sbr. Þjms. 14510. *Nafnið prentað, enda er þetta nafnspjald.

Aðrar upplýsingar

Guðmundur Einarsson, Hlutinn gerði
Gefandi:
Poul Uttenreitter
Safnnúmer
Safnnúmer A: 15330 Safnnúmer B: 1953-62
Stærð
25 x 0 cm Lengd: 25 cm
Staður
Staður: Kvennabrekka, 371-Búðardal, Dalabyggð, Miðdalir, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Trafaöskjur

Upprunastaður

65°1'45.6"N 21°38'39.7"W