Mynstur, f. útsaum

Gjört af Katrínu Þorsteinsdóttur eldri. Baldýringarmunstur klippt út í leður. Þetta er blómamunstur eða lauf sem koma upp úr einum og sama punkti en sveigja til sín hvorrar áttarinnar og er það symmetriskt. Límt upp á snepil af smjörpappír. Katrín Þorsteinsdóttir var gift Vigfúsi Pálssyni á Stóra-Hofi í Gnúpverjahreppi. Hún baldýraði munstur þetta í húfur á tvær dætur sínar, þær Sigríði sem giftist Þorsteini Jónssyni á Húsatóftum og Vilborgu sem var gift manni er hét Sigfús, þau voru barnlaus. Sigríður var fædd 05.03.1859 og Þorsteinn 29.11.1862, en þau voru foreldrar þeirra Katrínar og Þórdísar sem um getur hér á númerunum fyrir framan.

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
Safnnúmer B: 1974-80
Stærð
11 x 17 x 0 cm Lengd: 11 Breidd: 17 Hæð: 0 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti