Almanak, sjá einnig dagatal
1954

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Lítið dagatal/almanak
fyrir árið 1954, danskt. Einungis eitt blað sem brotið er saman um miðju.
Inn í það hefur ýmislegt verið skrifað, mestmegnis nöfn einstaklinga og
virðist því áminning um afmælisdaga. Grunnlitur er rauður en er með hvítu
og svörtu prenti og á bakhlið er hafnarmynd. Annað hvort úr eigu Ragnheiðar
Pétursdóttur eða foreldra hennar. Kom ásamt öðrum munum nr. 1999-20 sem
eru úr dánarbúi Ragnheiðar Pétursdóttur, barnaskólakennara. Sumir munanna
eru komnir frá foreldrum hennar, Steinunni Bjartmarsdóttur kennara og Pétri
Leifssyni ljósmyndara í Reykjavík.
Aðrar upplýsingar
Steinunn Bjartmarsdóttir, Notandi
Ártal
1954
Efni
Safnnúmer
Safnnúmer B: 1999-20-22
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Almanak, sjá einnig dagatal
