Kambur, f. hár
900 - 1000

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
„Endi af beinkambi“ sem
hefir verið 1 1/12 þuml. á breidd, er brot þetta
er rúmr þuml. á lengd, þessi kambr hefr verið mjög vel gerðr og með beinokum
eptir miðjunni, með rák eptir miðju, og með smá bronsunöglum. Á endanum
kambsins beggja megin við okana, eru tvefaldir smáhríngar með holu í miðju,
sem
er það forna einkenni: sílt er uppí miðjan endann á kambinum og hornin
ávöl:
tannirnar eru vel gerðar sem sagaðar væru með maskínusög, og öðrumegin
svo
smágerfar, að 11 tönnur hafa verið á ½ þuml. Lítið brot af okanum er laust
og
fylgir. Þessar leifar af kambi eru frá fornöld, því hann hefr verið líkr
og
þeir kambar sem fundist hafa í fornum dysjum, frá síðari hluta járn aldursins,
bæði hér og erlendis.
Aðrar upplýsingar
Gefandi: Michael M. L. Aagaard
Ártal
900 - 1000
Efni
Safnnúmer
Safnnúmer A: 3535
Safnnúmer B: 1891-14
Stærð
2.8 x 0 x 0 cm
Lengd: 2.8 Breidd: 0 Hæð: 0 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Fundaskrá
Undirskrá: Fundaskrá_Lausafundir
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Kambur, f. hár