Skírnarkjóll
1877

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Skírnarkjóll frá árinu 1877 úr hvítu, þunnu lérefti. Í miðstykki að framan eru blúndur og lek og sín hvorum megin við miðstykkið eru pífur úr sama efni og kjóllinn. Ermar eru stuttar, rykktar í handveg og framan á ermum og við hálsmál er mjó blúnda. Undirkjóll er úr þykkara lérefti og með breiðu milliverki neðarlega, saumuðu með harðangurs- og klaustursaumi. Kjóllinn er augljóslega mikið notaður og hefur mjög víða verið bættur og viðgerður. Stefán Jón Bernharðsson (f. 1978), sonur Ágústu Maríu Jónsdóttur og Bernharðar Wilkinsson, mun vera síðasta barnið sem skírt var í kjólnum og því hefur kjóllinn verið notaður í 100 ár.
Aðrar upplýsingar
Ártal
1877
Efni
Safnnúmer
Safnnúmer B: 1998-12
Stærð
97 x 22 cm
Lengd: 97 Breidd: 22 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Skírnarkjóll





