Mundlínuhringur

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Mundlínuhringur (servíettuhringur) úr silfri, 3,6 cm breiður og 4,9 cm í þvermál. Á honum er afmarkaður kringlumyndaður skjöldur með perlukransi umhverfis og þrykktum blómum til beggja hliða. Á skjöldinn er grafið G.M. sem eru upphafsstafir Guðmundar Magnússonar (Jóns Trausta, 1873-1918), skálds og prentara. Hringurinn er stimplaður H&C og mun vera þýzkur. Að auki er á honum gæðastimpillinn 830S og tölustafurinn 2.
Gripirnir nr. Þjms. 12927-12941 eru allir ánafnaðir safninu til minningar um Guðmund skáld Magnússon (Jón Trausta) af konu hans, Guðrúnu Sigurðardóttur.
Aðrar upplýsingar
Efni
Safnnúmer
Safnnúmer A: 12940
Safnnúmer B: 1941-75
Stærð
4.7 x 3.6 cm
Lengd: 4.7 Breidd: 3.6 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Mundlínuhringur
