Spjótsoddur, vopn

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Spjótsoddur úr stáli, l. 26,4 cm.: falurinn er 7 cm. að l. og hvor egg um 17,5 cm.: þær eru nær alveg beinar og ganga fram í hvassan odd: breiddin er 3,8 cm. efst. Beinn hryggur er eptir miðju. Þar sem falurinn er mjóstur er dálítill liður á honum til skrauts. Hann er 1,4 cm. að þverm. þar, en 2,2 cm. þar sem hann er víðastur. Geirnaglinn stendur í, en skaptleifar sjást engar. Lögunin er fremur ólík því sem er á fornum spjótsoddum og mun þessi yngri. Hann er mjög ryðugur, en lítt brunninn og heldur sjer óvenju vel. Fannst í moldarbakka við Arnarvatn hjá Mývatni í júni (S.V.) þ.á.
Aðrar upplýsingar
Gefandi: Jón Sigurðsson
Efni
Tækni
Safnnúmer
Safnnúmer A: 2393
Safnnúmer B: 1883-230
Stærð
26.4 x 0 cm
Lengd: 26.4 cm
Staður
Staður: Arnarvatn 1, Þingeyjarsveit, Mývatnssveit, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Fundaskrá
Undirskrá: Fundaskrá_Lausafundir
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Spjótsoddur, vopn
Upprunastaður
65°35'3.9"N 17°7'49.1"W



