Líkneski, úr kirkju
1500 - 1550

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Líkneski Jóhannesar skírara úr
Ögmundar-brík frá Skálholts-dómkirkju, sbr. Árb. Fornlfjel. 1904, bls.
24-27. Það er útskorið úr eik, hefur verið krítað og málað, en þess sjer
nú að eins lítinn vott, helzt í skegginu og hárinu, sem hvorttveggja er
með svörtum lit. Jóhannes er sýndur á fellingaríkri og fótsíðri kápu, er
virðist hafa verið rauð, og síðum kyrtli undir. Eins konar vefjarhöttur
er á höfðinu og eru á honum leifar af rauðum lit. Jóhannes heldur lambi,
einkunn sinni á vinstra framhandlegg og leggur hægri hönd ofan á bak þess.
Hann stendur beinn og er 69 cm. að hæð, og auk þess lafir kápan ca. 14
cm. niður-fyrir hægra megin. Líkneskið er mjög þykkt, hátt upphleypt, og
er ekki holt að aptan. (CXXXVI a II). Sjá mynd í Islands kirke, I. b.,
bls. 245.
Sjá ennfremur grein Kristjáns Eldjárn
í Stakir steinar, Reykjavík 1961
Aðrar upplýsingar
Ártal
1500 - 1550
Efni
Tækni
Safnnúmer
Safnnúmer A: 10884-a
Safnnúmer B: 1930-291
Staður
Staður: Skálholt, 801-Selfossi, Bláskógabyggð, Biskupstungur, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Líkneski, úr kirkju
Heimildir
Kristján Eldjárn: Stakir steinar,
Reykjavík 1961, bls. 112-121.
Upprunastaður
64°7'38.6"N 20°31'27.2"W
