Púðaborð

Púðaborð, sem gert er úr tveimur dúkum, annar þeirra er úr hvítu, gagnsæju hörlérefti en hinn úr bleiku silki, báðir ferhyrndir og ílangir, og stærð næstum jöfn. Hördúkurinn, lengd 40 cm x breidd 34 cm, er prýddur knipplingajaðri, flemish lace, og ísaumuðum myndum úr sams konar þræði, lágt upphleyptum, gerð er í miðju mynd drengs og stúlku, og drengurinn á hestbaki, en úti í hornunum sitja og hlaupa dýr í greinum, er þarna hani, hundur, héri og ugla, sem munu tákna árvekni, tryggð, iðni og visku. Lengd við silkidúkinn, en á honum er hafður ásaumaður jaðar úr sama efni, með grunnum skörðum í brúnir, er 47 cm, breidd 38 cm, en breidd jaðar 6,5 cm. Báðir hlutar púðaborðs þessa eru slitnir og rifnir, einkum þó silkidúkurinn. Valdimar Ásmundsson, ritstjóri, keypti grip þennan á Prestekknabasar, víst á árunum 1870-´80, og gaf Magdalenu Sæmundsen, móður frú Sigríðar, en Lovísa Danadrottning hafði gefið hann á basarinn. Yfirleitt var púðaborðið ekki notað daglega, en tekið fram við hátíðleg tækifæri og lagt á stólbak til skrauts.

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
Safnnúmer B: 1964-50
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Púðaborð