Gullhringur

Gullhringur. Er hann flatur á hliðar, 2,3 cm að þvermáli, breidd 0,5 cm og þykkt 0,1 cm. Grafin er áletrun með gotneskum upphafsstöfum umhverfis á hringnum að utan, fram með brúnum er mjó rák, og ná stafir á milli, áletrunin all skemmd, lesa má: "BALTA...IASPAR. MEL...IOR", þetta nöfn austurvegsvitringanna. Rákir, mjóar, grafnar með brúnum að innanverðu. Hringurinn er kveiktur á tveimur stöðum. Hefur máðst all mjög utan, beyglast örlítið, og skarð er í brún. Drengur að nafni Hreinn Hrafnsson fann hringinn fyrir þremur árum í moldum um 100 m vestur frá bæ að Myrká, en þar var verið að grafa gryfju, engar voru þar húsarústir.

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
Safnnúmer B: 1963-105
Stærð
305 x 172 x 17.5 cm Lengd: 305 Breidd: 172 Hæð: 17.5 cm
Staður
Staður: Myrká, 601-Akureyri, Hörgársveit
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Gullhringur
Heimildir
Kristján Eldjárn: "Hringur austurvegskonunga." Stakir steinar, Akureyri 1959, bls. 74-84.

Upprunastaður

65°37'59.3"N 18°33'23.6"W