Öskjulok
1634

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Öskjulok útskorið, kringlótt, 41,3 cm. að þverm. og 1,3 cm. að þ. Eintrjáningur, vantar svigann og dálítið af röndinni á 2 stöðum. Fyrir innan brúnir er skorinn einfaldur blaðastrengur umhverfis, br.3,5 cm., og innanvið hann leturhringur, sem þessi áletrun er skorinn í : HIRDSLAN/LÆST /AF/GVLLE/GLÆST/GEIMER/OG/STEINA/SKIÆRA/ECKE/NÆST/NIE.1) Fyrir innan leturhringinn, sem er 2,5 cm. að br., er hringur með snúru og í kringlunni innaní eru samandregnir latínuleturs-upphafsstafir, líklega upphafsstafir hjóna-eða stafir á konuheiti, og A.NN.O fyrir ofan, en 1634 fyrir neðan. Hefur þessi askja verið óvenju-stór. 1).Meira hefur ekki komist.Botninn á vísunni er svona: Úr henni fæst forma bólið kæra.
Aðrar upplýsingar
Gefandi: Jón Sigurðsson
Ártal
1634
Efni
Safnnúmer
Safnnúmer A: 1921
Safnnúmer B: 1881-57
Stærð
41.3 x 1.3 cm
Lengd: 41.3 Breidd: 1.3 cm
Staður
Staður: Gautlönd 1, Þingeyjarsveit, Mývatnssveit, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Öskjulok
Upprunastaður
65°33'8.1"N 17°7'53.2"W









