Reiði, af reiðtygjum

Jón Sigurðsson alþingismaður á Gautlöndum: Reiði úr tvöföldu leðri, yfirborðið sútað, undirborðið ósútað, klofinn fyrir aptan og framan kúlu, br.alls um 7 cm. Koparhringur í frmri endanum, en látúnskynnur um hinn aptari. Lendarólar ganga út til beggja hliða og mynda þríhyrninga, sem venjulega. á hvorri þeirra eru 3 kopardoppur hvoru megin, negldur í gegn og ró á að neðan, tígulmyndaðar, með blómi. Rúðóttur þríhyrningur er yst á horninu öðru, farinn af hinu. Drifinn skjöldur eða reiðakúla er á miðju, kringlótt og 7 cm. að þverm., og sömuleiðis eru drifnar þynnur á sprotum út frá, er ganga út í odd. l.7,5 cm. br. 5,7 cm. Fyrir framan og aptan reiðakúluna eru 3 doppur stærri á hvorri ól en þær sem eru á lendarólunum, en að öðru leyti líkar, og ennfremur eru fyrir framan reiðakúluna 4 pör á hvorri ól og fyrir aptan hana 3 pör á hvorri ól af minni, en að öðru leyti líkum doppum eða nöglum. Alt þetta látúnssmíði ber óíslenskan svip og er sennilega á einhvern hátt innflutt, þótt reiðin sjé líklega búin til hjér. Hann er um 55 cm. að l., og br. um lendarólarnar mest um 35 cm. Volkann vantar.

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
Safnnúmer A: 1920 Safnnúmer B: 1881-56
Stærð
55 x 35 x 0 cm Lengd: 55 Breidd: 35 Hæð: 0 cm
Staður
Staður: Gautlönd 1, Þingeyjarsveit, Mývatnssveit, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti

Upprunastaður

65°33'8.1"N 17°7'53.2"W