Líkneski, úr kirkju

1750 - 1800
Umfjöllun sem birtist í Menningarblaði Morgunblaðsins, 30. júlí 2026 þar sem fjallað er um gripi í varðveislu Þjóðminjasafnsins undir formerkjunum „Gersemar þjóðarinnar”: Hjón og ljón Myndskurður frá Munkaþverá „Myndir þessar eru luralegar og ekki allfagrar, en þó lýsa þær búningnum, eins og hann var á þeim tíma; þær munu vera frá síðari hluta 18. aldar.” Svo er þessum útskornu líkneskjum manns og konu lýst í skrám Þjóðminjasafnsins seint á 19. öld. Um útlit má alltaf deila en hitt er víst að hér er um stórskemmtilegan grip að ræða. Það var Jón Jónsson, hreppstjóri á Munkaþverá í Eyjafirði sem gaf gripinn til safnsins árið 1873. Honum fylgdi því miður engin saga en þó segir hann okkur eitt og annað, ekki hvað síst um kæðnað fólks og tísku. Karlinn klæðist blárri, einhnepptri peysu og hefur ljósan klút um hálsinn. Hann er berhöfðaður, með nokkuð sítt hár sem er krullað upp að neðan. Konan ber háan krófald á höfði sem bundið er um að neðan með dökkum höfuðklút með rauðum bekkjum. Samkvæmt þess tíma tísku hylja faldurinn og klúturinn alveg hár konunnar. Hún klæðist kvenhempu, hlífðarflík þegar ferðast var og var nokkuð algeng 17. og 18. öld. Kringum hálsmál hempunnar og niður með börmum eru skrautleggingar. Eins og tíðkaðist er hempunni einungis krækt saman efst. Undir henni sér í rauðan klæðnað og kraginn sem konan ber er í sama lit, með dökkum bekkjum til skrauts. Líkneskin hjónanna eru fest á þverspýtu sem á eru skorin tvö ljón. Stílbragð útskurðarins á þverspýtunni er harla ólíkt útskurðinum á hjónunum og ber með sér að ljónin séu mun eldri en hjónin. Hlutverk ljónanna hefur því upphaflega verið allt annað en að bera uppi þessi prýðilegu 18. aldar hjón. Bókin Gersemar og þarfaþing: Úr 130 ára sögu Þjóðminjasafns Íslands í ritstjórn Árna Björnssonar kom út árið 1994. Þar skrifa Berglaug Skúladóttir og Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson um þennan áhugaverð grip á bls. 32-33. Úr aðfangabók: Mannslíkan og konulíkan, eða líkneski, skorin úr tré. Myndirnar eru niður fyrir brjóstið; þær standa á tveimur liggjandi ljónum, er snúa saman hölunum, og leggja þá upp á bakið; milli dýranna er lítil blaðarós; karlmaðurinn er berhöfðaður, með sítt hár greitt til beggja hliða, og hrekkur upp að neðan; hann hefir klút um hálsinn ljósleitan, og er í blárri peysu einhneptri, eða einhverju þess konar; hann stingur annari hendinni í barminn. Konan hefir fald ákaflega háan, sem breiðkar mjög að ofan, en verður þó ekki allþunnur: hann beygist að ofan, og endar í snarbeygðum krók; faldurinn er hvítur; um höfuðið hefir hún dökkan klút, með rauðum bekkjum, er nær niður fyrir eyru, og upp á miðjan fald og myndar hann á enninu odd. Ekkert hár sést: konan hefir kraga um hálsinn, eins og fylgdi búningnum, er tíðkaðist næst á undan þeim, er nú er hafður; hún er í hempu fellingalausri, með leggingum í kringum hálsmálið, og niður eptir börmunum; hempan er krækt niður á mitt brjóstið, en síðan stendur hún opin, og sér þar í rautt undir. Myndir þessar eru luralegar og ekki allfagrar, en þó lýsa þær búningnum, eins og hann var á þeim tíma; þær munu vera frá síðari hluta 18. aldar; þær hafa verið settar ofan á stólpa, er staðið hefir upp, því gat er upp í gegnum miðja spítuna, er ljónin eru skorin á.

Aðrar upplýsingar

Gefandi: Jón Jónsson
Ártal
1750 - 1800
Safnnúmer
Safnnúmer A: 960 Safnnúmer B: 1873-43
Stærð
35 x 39 cm Lengd: 35 Breidd: 39 cm
Staður
Staður: Munkaþverá, 601-Akureyri, Eyjafjarðarsveit , Staðarbyggð, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Líkneski, úr kirkju
Myndefni:
Kvenmaður
Myndefni:
Karlmaður
Heimildir
Bergendahl Hohler, Erla. „The Capitals og Urnes Church and their background.“ Acta archaeologica, Vol. 46, 1975, bls. 1-60. Berglaug Skúladóttir og Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson.„Hjón og ljón.“ Gersemar og þarfaþing. Reykjavík 1994, bls. 32-33. Elsa E. Guðjónsson. Íslenzkir þjóðbúningar kvenna frá 16. öld til vorra daga. Reykjavík 1969. Fergusson, George. Signs and Symbols in Christian Art. Oxford 1979. Fisher, G. Domkirken i Trondheim I-II. Oslo 1965. Hjort, Øjstein. „Kors, livstræ, søjle. Omkring nogle jyske tympanon-udsmykninger“" Romanske stenarbejder 4. Århus 1989, bls. 105-124. Kirkjur Íslands, 10.bindi. Ritstjórar: Jón Torfason, Þorsteinn Gunnarsson. Reykjavík, 2007.

Upprunastaður

65°32'41.1"N 18°4'50.4"W