Kambur, f. hár

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Kambsbrot fornt af
beinkambi, kinnarnar og lítið eitt af tannþynnunum á milli, negldar saman
með 5 pörum af eirnöglum. L. 7,2 cm., en brotið af öðrum enda: br.
kinnanna 8 mm., þ. 2. Tennur hafa verið beggja vegna, 8 á cm. annars
vegar, en 4 hins vegar. Sennilega úr hreindýrs - eða elgjar - horni,
eða þvílíku efni. Smíðaður á hinn venjulega, forna hátt, sbr. nr.
3364 einkum: ennfr. nr. 1207 og það sem vísað er til í lýsingunni af þeim
kambi. Eptir miðjum kinnum er lítil rák. Nokkrar af smærri
tönnunum eru heilar og eru þær 11 mm. að l. - Fannst í rústarflagi
a Vestmannaeyjum (S.V.): líklega í rofunum undir Hánni, þar sem ýmislegt
fornt hefur fundist og er margt af því síðar komið til safnsins. Brot
þetta afhenti sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum, Michael M. L. Aagaard.
Aðrar upplýsingar
Gefandi: Michael M. L. Aagaard
Efni
Safnnúmer
Safnnúmer A: 2793
Safnnúmer B: 1886-65
Stærð
7.2 x 0.8 x 2 cm
Lengd: 7.2 Breidd: 0.8 Hæð: 2 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Fundaskrá
Undirskrá: Fundaskrá_Lausafundir
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Kambur, f. hár