Bollasett
1907

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
,,Konungsbollar".
10 stk. rósabollar með undirskálum og kökudiskum. Rósamynstrið
er í rauð- og bláleitum litum. Á börmum bolla, diska og undirskála
er gylling og að auki þrjár gylltar rendur á hönkum bollanna. Keypt
á uppboði í Reykjavík eftir konungskomuna 1907. Hafði verið notað
í konungsveislunni, líklega þá á Þingvöllum. Er úr dánarbúi Ingibjargar
Guðmundsdóttur kennara. Sigríður Davíðsdóttir ljósmóðir og móðir
Ingibjargar keypti bollasettið.
Aðrar upplýsingar
Gefandi: Sigríður Tómasdóttir
Ártal
1907
Safnnúmer
Safnnúmer B: 1971-8
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Bollasett