Lyklasylgja, óþ. notk.

Lyklasylgja (eða öllu heldur skjöldur), úr messing. Er þessi sylgja að heita má alveg eins og nr. 3151, og mætti ætla að báðar séu gerðar af sama manni: hún er kringlótt, 11,4 cm að þverm., með gagnskornu og gröfnu skrautverki í rómönskum stíl, er það með blaðastrengjum og greinafléttum og kynjadýrum, sem bíta um greinarnar. Yzt umhverfis er leturlína með höfðaletri er virðist mega lesa á þessa leið: uel-ma-vifit-skyra-vid-bioda-nn-þier-seigi-eg-sylg- meira hefur ekki komizt fyrir, og er þetta líklega upphaf að dróttkveðinni vísu. Nokkur göt eru boruð á úti við kantinn, en ekki verður séð, hvort þau hafa verið þar upphaflega, eða verið gerð síðar. - Sjá að öðru leyti lýsingu við nr. 3151. - Jóhannes Lárusson frá Narfeyri, síðar í Ameríku, átti þennan grip, sem talinn er vera frá Breiðafirði: en seljandi mun vera ekkja Jóhannesar, og dóttir Jóns Jónssonar frá Seglbúðum, f. 22.7.1869.

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
Safnnúmer A: 14057 Safnnúmer B: 1949-11-2
Stærð
11.4 x 0 x 0 cm Lengd: 11.4 Breidd: 0 Hæð: 0 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti