Málverk, + mótív

Málverk á striga, hæð 4.43 m, sýnir hæðir, vatn og laufskóg. Aftan á er skrifað: Himmelbjærg. Ríkisstjórnin afhenti ýmsa muni sem höfðu verið lengi í Alþingishúsinu. Þar á meðal voru nokkur málverk, mjög stór, upprúlluð (Þjms. 14897-14902). Í aðfangabók safnsins eru þau skráð svo: "6 málverk frá sýningu í París 1904 [það svo leiðrétt í 1901] ("skrælingjasýningunni")." Í safnskrá safnsins eru þau hins vegar skráð svo: "b. Ýmis málverk frá sýningu í Kaupmannahöfn 1904 ("skrælingjasýningunni")." Hér er því um tvær ólíkar sýningar að ræða. Annars vegar er væntanlega átt við heimssýninguna í París árið 1900 og hins vegar nýlendusýninguna í Tívolí í Kaupmannahöfn árið 1905 (Dansk Koloniudstilling samt Udstilling fra Island og Færøerne). Það var sú síðarnefnda sem hér á landi var kölluð "skrælingjasýningin". Enn er því ekki ljóst á hvorri sýningunni málverkin voru. Það þarf að rannsaka og staðfesta. (Freyja Hlíðkvist Ómarsdóttir Sesseljudóttir, mars 2024).

Aðrar upplýsingar

Tækni
Safnnúmer
Safnnúmer A: 14901 Safnnúmer B: 1951-143
Stærð
443 x 0 cm Lengd: 443 cm
Staður
Staður: Alþingi, Kirkjustræti 14, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Kvosin, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti

Upprunastaður

64°8'48.4"N 21°56'24.6"W