Málverk, + mótív

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Málverk á striga, br. minni en hæð, sem er 4.65 m, sýnir laufskóg og himin. Ómerkt.
Ríkisstjórnin afhenti ýmsa muni sem höfðu verið lengi í Alþingishúsinu. Þar á meðal voru nokkur málverk, mjög stór, upprúlluð (Þjms. 14897-14902). Í aðfangabók safnsins eru þau skráð svo:
"6 málverk frá sýningu í París 1904 [það svo leiðrétt í 1901] ("skrælingjasýningunni")."
Í safnskrá safnsins eru þau hins vegar skráð svo:
"b. Ýmis málverk frá sýningu í Kaupmannahöfn 1904 ("skrælingjasýningunni")."
Hér er því um tvær ólíkar sýningar að ræða. Annars vegar er væntanlega átt við heimssýninguna í París árið 1900 og hins vegar nýlendusýninguna í Tívolí í Kaupmannahöfn árið 1905 (Dansk Koloniudstilling samt Udstilling fra Island og Færøerne). Það var sú síðarnefnda sem hér á landi var kölluð "skrælingjasýningin". Enn er því ekki ljóst á hvorri sýningunni málverkin voru. Það þarf að rannsaka og staðfesta. (Freyja Hlíðkvist Ómarsdóttir Sesseljudóttir, mars 2024).
Aðrar upplýsingar
Gefandi: Ríkisstjórn Íslands
Tækni
Safnnúmer
Safnnúmer A: 14898
Safnnúmer B: 1951-140
Stærð
465 x 0 cm
Lengd: 465 cm
Staður
Staður: Alþingi, Kirkjustræti 14, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Kvosin, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Málverk, + mótív
Upprunastaður
64°8'48.4"N 21°56'24.6"W