Málverk, + mótív

Málverk á striga, br. 3.85 m, hæð til muna meiri. Myndin sýnir skip Botníu frá Esbjerg, ásamt fleiri skipum og bátum, en borg á baksýn, ef til vill Kaupmannahöfn. Ómerkt. Ríkisstjórnin afhenti ýmsa muni sem höfðu verið lengi í Alþingishúsinu. Þar á meðal voru nokkur málverk, mjög stór, upprúlluð (Þjms. 14897-14902). Í aðfangabók safnsins eru þau skráð svo: "6 málverk frá sýningu í París 1904 [það svo leiðrétt í 1901] ("skrælingjasýningunni")." Í safnskrá safnsins eru þau hins vegar skráð svo: "b. Ýmis málverk frá sýningu í Kaupmannahöfn 1904 ("skrælingjasýningunni")." Hér er því um tvær ólíkar sýningar að ræða. Annars vegar er væntanlega átt við heimssýninguna í París árið 1900 og hins vegar nýlendusýninguna í Tívolí í Kaupmannahöfn árið 1905 (Dansk Koloniudstilling samt Udstilling fra Island og Færøerne). Það var sú síðarnefnda sem hér á landi var kölluð "skrælingjasýningin". Enn er því ekki ljóst á hvorri sýningunni málverkin voru. Það þarf að rannsaka og staðfesta. (Freyja Hlíðkvist Ómarsdóttir Sesseljudóttir, mars 2024).  

Aðrar upplýsingar

Tækni
Safnnúmer
Safnnúmer A: 14897 Safnnúmer B: 1951-139
Stærð
385 x 0 cm Lengd: 385 cm
Staður
Staður: Alþingi, Kirkjustræti 14, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Kvosin, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti

Upprunastaður

64°8'48.4"N 21°56'24.6"W