Þvottabretti

1920 - 1960
Þvottabretti af hefðbundinni gerð. Ramminn er úr við, en riffluð glerplata, sem þvottinum var núið við, er felld í rauf í rammanum. Ofan við glerplötuna er bakki eða hilla fyrir sápu. Í bakhliðinni eru tvær fjalir aftan við glerplötuna. Brettið er heilt og í mjög góðu ástandi. Þvottabretti voru notuð til þvotta áður en þvottavélar komu til sögunnar. Gefandi er Guðbjörg Snót Jónsdóttir, en allir gripirnir nr. Þjms. 2006-12 eru úr búi föður hennar, Jóns Sigurðssonar, f. 1902, d. 1984. Skráð í Sarp 2: "H. 62,1; Br. 30,7 - 34,6; Þ. 4,3 cm"

Aðrar upplýsingar

Ártal
1920 - 1960
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2006-12-1
Stærð
62.1 x 34.6 x 4.3 cm Lengd: 62.1 Breidd: 34.6 Hæð: 4.3 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Þvottabretti