Grafskrift

1923
Grafskrift, orkt og skrautrituð af gefanda, eptir sjera Matthías Jochumsson: skrautrituð 1923, svo sem á hana er skráð, en erfiljóðin orkt 2/12. 1920, eins og skrifað stendur fyrir neðan þau. Nafnið er mjög litum skreytt og erindin 5 með settletri þar fyrir neðan. Rauðar rósir eru í hornunum við síðasta erindi og hvítar ofar, en blaðaskruut umhverfis að neðan og uppmeð: Kross yfir og geislar útfrá honum, en lýsa í sveig fyrir neðan. Umhverfis alt eru rauð, gylt og blá bönd, og myndkringla í hverju horni: eru á þeim litmyndir: kirkjustaður, foss, svanir á sundi og viti á skerjum. Alt á hvítu blaði og það í svartri trjeumgjörð með baki að aptan úr pappa og gleri fyrir: st. 61 x 50,7. Sbr. brjef frá höf., dags. 21. nóv. Mun grafskriftin hafa komið skömmu síðar, þótt ekki sje hún skráð fyr meðal gripa safnsins.

Aðrar upplýsingar

Pétur Pálsson, Hlutinn gerði
Gefandi:
Pétur Pálsson
Ártal
1923
Safnnúmer
Safnnúmer A: 8890 Safnnúmer B: 1923-200
Stærð
61 x 50.7 x 0 cm Lengd: 61 Breidd: 50.7 Hæð: 0 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Grafskrift