Vasaúr

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Gullúr. Þetta er
lítið vasaúr með lengri festi. Þvermál 3.4 sm, þykkt 1 sm. Á skífunni stendur
með svörtu latnesku prentletri: INVAR, Magnús Benjamínsson & Co. Á
lokið er grafið með flúruðu skrautverki: VS. Innan á því eru ýmsar tölur
og merki. Á úrverksskífuna er grafið INVAR og ýmis vöruauðkenni, og auk
þess út við jaðra: Kveðja frá Vífilsstaðabúum. Sporöskjulaga hulstur leikur
á festinni, og er það úr gulli eins og hún. Á aðra hlið þess er grafið:
Til VKS, en á hina: frá TS. Hulstur þetta er 1.4 sm á lengd.
Aðrar upplýsingar
Efni
Safnnúmer
Safnnúmer A: 15010
Safnnúmer B: 1951-256
Stærð
3.4 x 0 x 0 cm
Lengd: 3.4 Breidd: 0 Hæð: 0 cm
Staður
Staður: Vífilsstaðir / Vífilsstaðabúið, Vífilsstaðabúið, 210-Garðabæ, Garðabær
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Vasaúr
Upprunastaður
64°4'59.5"N 21°53'25.8"W