Fatakista
1830 - 1870

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Fatakista, hólfkista, útlend. 78
cm breið, 39,5 cm há upp að efri brún loks og neðst er kistan 33 cm djúp
en breikkar uppávið og við lok er hún 39,5 cm djúp. Hún er grænmáluð með
skrautmáluðum blómsveig á framhlið. Brúnir eru svartmálaðar. Lokið er gert
úr þremur fjölum og er eilítið kúpt. Fjalirnar eru festar með trétöppum.
Fjalirnar í lokinu eru orðnar lausar og gleitt er á milli þeirra. Málning
er mjög máð af lokinu. Tvær járnlamir, ryðgaðar. Önnur þeirra er brotin
og hin er laus frá kistu. Lokið er því laust frá kistunni. Á kistunni framanverðri
er járnlæsing, ryðguð. Lykill fylgir ekki. Járnhöldur eru á hvorri hlið
kistunnar. Á bakhlið hennar er skorið: XVII. Botninn er úr tveimur fjölum
og gleitt er á milli þeirra. Kistan er ómáluð að innan. Vinstra megin efst
í kistunni er lítið hólf með loki.
Kistan er úr búi sr. Páls Jónssonar
í Viðvík (f. 1812, d. 1889). Gefandi, Guðrún Ingólfsdóttir, Grettisgötu
6 Rvk., fékk kistuna frá dótturdóttur Páls (?) Sigríði Þorláksdóttur.
Kistan þarfnast viðgerðar.
Aðrar upplýsingar
Ártal
1830 - 1870
Efni
Tækni
Safnnúmer
Safnnúmer B: 1990-71
Stærð
39.5 x 78 x 0 cm
Lengd: 39.5 Breidd: 78 Hæð: 0 cm
Staður
Staður: Viðvíkurkirkja, Kirkjan, 551-Sauðárkróki, Skagafjörður, Viðvíkursveit, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Upprunastaður
65°45'59.0"N 19°16'40.2"W
