Ístað
1000 - 1050

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Fornt ístað úr bronzi; það er 3 3/4 þumlúngs að innanmáli yfir skóinn og 3 þumlúngar að hæð innanmáls. Það er því hérumbil alveg af sömu stærð og nr. 332, og af mjög líkri gerð, með spöðum niður úr og hnöttóttum agnúum út úr að neðan, beinum skó og sléttum, nema hvað lítil bryggja gengur niður úr skónum með litlum laufum niður úr. Sú bryggja er einúngis annarsvegar, og hefir hún verið höfð á þeirri hliðinni ístaðsins, sem snýr út, þegar ístöðin lafa laus niður með hesthliðinni. Sama bryggja er og á nr. 332, en með engum laufum. Spaðinn er að ofan 1½ þumlungur á breidd, og er gróp í hann fyrir ístaðs ólina á gagnstæða hlið og bryggjan er niður úr ístaðinu, eins og er á nr. 332, og sýnir það, að hliðin, sem bryggjan er á , hefir snúið út. Grópið fyrir ólinni er einn þumlúngur á þessu ístaði, en rúmur 1½ á nr. 332, og hefir það verið breidd ólanna. Ólin hefir á þessu ístaði verið negld með þremur járnnöglum. Spaðinn hefir verið uppmjór, og meitlaður (en eigi grafinn) á hann tvíhöfðaður ormur með gapanda gini, snýr lykkjan niður og hausarnir upp, og eru þeir bundnir saman skammt fyrir neðan eyrun og beygjast hausarnir hver út frá öðrum, í staðinn fyrir að ormarnir á hinu ístaðinu eru bundnir saman á sporðunum að ofan. Líka virðist að hafa verið smelt einhverjum öðrum málmi ofan í gröftinn á því ístaði. Mér þykir undarlegt hvað bæði þessi ístöð eru lítil, enda gætu það hafa verið kvenn-ístöð. Þau eru bæði auðsjáanlega frá voru elzta tímabili, og gjörð í hinum gamla norræna heiðna stíl. Ístaðið fannst uppblásið úr melbarði í eða við Viðarfell, sem er efst í Reykjadal í Þíngeyjar sýslu.
Aðrar upplýsingar
Gefandi: Jón Sigurðsson
Ártal
1000 - 1050
Efni
Tækni
Safnnúmer
Safnnúmer A: 381
Safnnúmer B: 1867-23
Stærð
13.6 x 11.3 cm
Lengd: 13.6 Breidd: 11.3 cm
Staður
Staður: Viðarfell, Þingeyjarsveit, Reykjadalur, Ísland
Sýningartexti
Ístað úr bronsi, á spaðann er grafið skrautmunstur, tvö ormahöfuð sem hafa verið innlögð með málmblöndu, niello, til frekara skrauts. Talið helst af enskri gerð frá upphafi 11. aldar. Fundið hjá Viðarfelli efst í Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu.
381
Ístað úr bronsi, á spaðann er grafið skrautmunstur, tvö ormahöfuð sem hafa verið innlögð með málmblöndu, niello, til frekara skrauts. Talið helst af enskri gerð frá upphafi 11. aldar. Fundið í Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu.
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Fundaskrá
Undirskrá: Fundaskrá_Lausafundir
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Ístað
Heimildir
Kristján Eldjárn. Kuml og haugfé. Reykjavík 2000, bls. 319.



