Grafljós, á leiði
2006

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Rafhlöðuljós, hvítt, með einni
peru. Kallað kerti í versluninni Ellingsen. Ljósið er fyrir tvær 1,5 v.
rafhlöður. Ljós logar stöðugt eftir að kveikt hefur verið. Á stórumbúðum
frá framleiðanda (þær fylgja ekki) stendur: Battery grave light / non
stop grablicht. Notað til að setja í luktir / ljósker á leiðum. Framleiðandi
er ILLUMO (sbr. botn ljóssins).
Gjöf frá Ellingsen, Grandagarði
(þá), Reykjavík, 16.2.2006. Sbr. Þjms. 2006-25-12 og 13.
Öllum gripunum sem skráðir eru
á númerið Þjms. 2006-26 safnaði Ágúst Ó. Georgsson í tengslum við samtímarannsókn
sína á þeim sið að setja ljós á grafir og kveikja á þeim („ljósin á gröfunum“).
Rannsóknin var liður í undirbúningi að gerð sýningar um andláts- og útfarasiði
sem fyrirhuguð var í Bogasal.
Aðrar upplýsingar
Gefandi: Ellingsen
Ártal
2006
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2006-26-7
Stærð
9.1 x 6 x 0 cm
Lengd: 9.1 Breidd: 6 Hæð: 0 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Grafljós, á leiði
