Trafakefli
1600 - 1700

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Stórt trafakefli: það er úr eik,
og holað innan sem stokkur: yfir því er hvelft
lok gagnskorið,viðargrein með leggjum og blöðum: undir það er negld fjöl
eða
stétt, sem stendur út af, en það mun vera síðar gjört: annað handfangið
er
mannshönd krept í lófann, þvert yfir úlfliðinn er skorin hnútarós vel gjörð.
Hitt handfangið er flatur hnúður: ofan á hann er skorinn hnútur, en að
neðan er
sexblaðarós, og hringur yfir blöðin. Á báðum hliðum á keflinu
er höfðletur,
og alt í kring og utan á hneiðnum eða handfanginu, sem er þannig: „Vertu
reblum vafinn dáða, víki skaðinn, eigðu keblinn, kvendið dáða mig kistu
í
staðin. Helga Magnúsdóttir.“ Höfðaletrið er fallegt og líkist helzt
gotnesku
letri. Allur skurður á keflinu er vel gjörður, það er ekki yngra en frá
seinni
hluta 17. aldar, getur verið eldra.
Aðrar upplýsingar
Gefandi: Jón Jónsson
Ártal
1600 - 1700
Efni
Tækni
Safnnúmer
Safnnúmer A: 956
Safnnúmer B: 1873-39
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Trafakefli