Millipils

1936
Pilsið er sýningar- og verðlaunagripur, sennilega frá árinu 1936. Það er prjónað úr þríþættu örmjóu ullarbandi í fimm mismunandi brúnum litum. Það er símunstrað með bekkjum (kallað krónuprjón?). Í mittið er það dregið saman með bandi. Neðst er heklaður kantur. Það virðist prjónað með fimm prjónum í hring. Svanhildur Ingimundardóttir fékk pilsið að gjöf þegar Þóra lést árið 1945. Notaði það fyrst sem sparimillipils en síðar 1950-1960 sem undirpils við almenna verkakvennavinnu. Þóra sem prjónaði pilsið var annáluð tóvinnukona.

Aðrar upplýsingar

Ártal
1936
Safnnúmer
Safnnúmer B: 1981-45
Stærð
80 x 51.5 x 0 cm Lengd: 80 Breidd: 51.5 Hæð: 0 cm
Staður
Staður: Fitjakot, 270-Mosfellsbæ, Reykjavíkurborg
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Millipils

Upprunastaður

64°11'18.4"N 21°41'34.4"W