Trafaaskja

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Trafaöskjur, erlendar,
úr tré og málaðar utan. Eru þær sporlaga, smíðaðar úr furu, með tágaseymi,
og neglt með tittum úr tré við brúnir. Hæð við lok 8,2 cm. Í loki
og botni plötur, lokhliðar úr einni þynnu en að neðan eru tvær þynnur í
hliðum. Grunnur er hafður dökkblár, hvítar rákir með brúnum á loki
og neðst á öskjum, á miðju lokinu má sjá mynd af ref er ríður gæs, og tré
í kring, litir hvítt og rauðbrúnt, en á hliðar á öskjunum eru málaðir blómstrengir
með hvítum lit, rauðbrúnum, grunnum, bláum og gulbrúnum. Lítið eitt
hefur kvarnast úr við brúnir, málningin eydd nokkuð og blettir á, seymi
hefur bilað og negling er styrkt með líkum járnnöglum. Álfheiður
Þorsteinsdóttir, kona Guðmundar Snorrasonar, sem lengi bjó að Fossgerði
í Jökuldal, gaf Ingibjörgu öskjurnar árið 1930. Þá var hún um áttrætt,
og átti heima að Kirkjubæjarklaustri. Ingibjörg var hjá þeim hjónum
nokkur ár í bernsku, og hélt tryggð við þau. Samanber meðfylgjandi
blað.
Aðrar upplýsingar
Gefandi: Ingibjörg Guðmundsdóttir
Efni
Safnnúmer
Safnnúmer B: 1964-51
Stærð
41.6 x 15.5 x 27 cm
Lengd: 41.6 Breidd: 15.5 Hæð: 27 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Trafaaskja