Teikning, listræn

1858 - 1888
Lituð teikning eftir Sölva Helgason (Sólon Islandus): Olivarius sýslumaður. Eins konar skopteikning. Hann er sýndur margeygur, með mikið hár og skegg. Fyrir ofan og neðan myndina er smáskrift með svörtu bleki. Niðurlag textans er eitthvað á þessa leið: Enn, nú kjemur það sem undarlekt er: það eru þrjár persónur í þessari lúmsku mind fláræðisins: djöfulsins, Ólivaríus og Björn á Búlandsnesi, allir hinir sömu, einn í þrenningu og þríeinir í einingu allra skamma og lasta og svívirðingu fláræðinsins og fúlmennskunnar, helvískrar mindar og djöfulæðis o.fl. o.fl. Það sem umm einn þeirra er sagt er, er umm þá alla þriá sagt í einingu, eptir [...]. Allir þeir þrír seigjast vera guðir helvítanna. Hvað þurfum vier þá framar vitnanna við!! Sínist iður ekki þeir mannúðleigir? Þá þjer sjáið þá alla í þessari einu þar allir þeir eru eins, og eitt og hið sama þeir allir, einn og þrír, í þessari einu skrípamind af þeim. Bakhliðin er ennfremur þakin smáskrift Sölva. Myndin er í mjög góðu ástandi. Litir eru skærir og hafa ekki upplitast. Örlítið hefur rifnað af einu horni blaðsins. Myndin er hluti af hinni svokölluðu "syrpu" Sölva, þ.e. uppdrættir og skrif Sölva Helgasonar: blaðaböggull. Mun vera frá því um 1858 - 88. Uppdrættirnir eru flestir skrautlegir stafir, blóm og mannamyndir, einkum eins konar myndir af honum sjálfum: margar í miklu blómskrauti: stafirnir einnig mestmegnis upphafsstafir ýmsra nafna, er hann gaf sjer. Er í þeim og blómskrautinu talsverð leikni og skraut í litum og línum. Ritin eru á lausum blöðum og hafa þau ruglast: á flest myndablöðin er og skrifað að aptanverðu. Einnig eru nokkur hver útskrifuð í 8 vo. Skriftin er ásjáleg, en svo sandsmá að erfitt er að komast fram úr henni. Er hjer ferðasaga, stjörnufræði, fornaldarsaga, æðislegt hól um höf. og botnlausar skammir um aðra. Ber alt vott um brjálaðan hæfileikamann. Sbr. nr. 8431. Frá Sighvati Borgfirðingi.

Aðrar upplýsingar

Ártal
1858 - 1888
Safnnúmer
Safnnúmer A: 8839-2 Safnnúmer B: 1923-149-2
Stærð
21.1 x 16.9 cm Lengd: 21.1 Breidd: 16.9 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti