Barmmerki, + hlutv.
1980 - 2007

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Safn barmmerkja, flest með pólitískum áróðri. Merkin eru 18 talsins og mismunandi að stærð og lögun:
- Fremur stórt, hringlaga barmmerki, hvítt á lit með mynd af hnífi (fiskverkunarhnífi) og brýni sem lögð eru í kross. Til hliðanna stendur: STYÐJUM BARÁTTU FARANDVERKAFÓLKS. (Þvm. 6,4 cm).
- Fremur stórt, hringlaga barmmerki, hvítt á lit með áletrun í rauðu og bláu: Búseti: Barátta fyrir búsetu. (Þvm. 5,9 cm).
- Ferningslaga barmmerki. Í grunninn er það hvítt á lit. Á því er teikning í svörtu af þremur manneskjum í jakkafötum. Höfuð þeirra eru einungis stórir munnar, með rauðar varir, sem syngja. Neðst stendur: Háskólakórinn. (Þvm. 3,2 cm).
- Hringlaga barmmerki, bleikt á lit, með teikningu af fígúru (bókastafla?) með fætur og hyrndan „víkingahjálm“ á höfði. (Þvm. 3,8 cm).
- Hringlaga barmmerki með fána Palestínu og á miðju er prentað í svörtu: Frjáls Palestina. Merkið er frá samnefndum samtökum. (Þvm. 3,7 cm).
- Hringlaga barmmerki sem framleitt var í tilefni af 60 ára afmæli Ríkisútvarpsins (RÚV) árið 1990. Merkið er hvítt í grunninn en áletrunin er blá og rauð og sýnir merki útvarpsins og sjónvarpsins sem saman mynda töluna 60 og fyrir ofan stendur: ÁR. (Þvm. 3,8 cm).
- Lítið barmmerki úr málmi, ferhyrnt, með bláum grunni og upphleyptum stöfum: rúv, þ.e. Ríkisútvarpið. (L. 1,6; H. 1,2 cm).
- Barmmerki, U-laga, frá samtökunum Vímulaus æska og Lions. Á því er merki samtakanna, tveir túlípanar, annar rauður en hinn grár og fölnaður. Neðst sér í íslensku fánalitina. Grunnur merkisins er ljós með gylltri rönd umhverfis og á merkinu stendur með gylltu: VÍMULAUS, og neðar: ÍSLAND. (H. 2,6; Br. 1,8 cm).
- Hringlaga barmmerki, rautt í grunninn en áletrun og teikning eru hvítar og svartar. Fyrir miðju merkisins er mynd af hauskúpu með hermannahjálm og úr augntóftum hauskúpunnar ganga tvær sprengiflaugar. Fyrir ofan kúpuna stendur: KJARNORKU VOPN, og fyrir neðan: NEI! (Þvm. 3,2 cm).
- Hringlaga barmmerki með hvítum grunni en á því er grafísk mynd af Íslandi í bláum og rauðum lit. Fyrir ofan myndina stendur í rauðum lit: ÚT NATÓ, og fyrir neðan í bláum lit: HERINN BURT. Þetta er hið þekkta áróðursslagorð herstöðvarandstæðinga: Ísland úr Nato, herinn burt!, en samtökin voru mjög virk um árabil, ekki síst á 8. áratugi 20. aldar. Merkið er væntanlega frá því um 1975-1980. (Þvm. 3,2 cm).
- Hringlaga barmmerki með bakgrunni í regnbogalitum og hvítri mynd (eins og klippimynd) af tveimur kvenmönnun sem leiðast. Fyrir neðan stendur með hvítum stöfum: VIRÐING. Merkið er að líkindum frá Samtökunum 78, þ.e. samtökum samkynhneigðra á Íslandi og tengist réttindabaráttu þeirra. (Þvm. 3,7 cm).
- Hringlaga barmmerki með hvítum grunni. Umhverfis er blá rönd. Á merkinu er mynd af tveimur sáðfrumum með höfuð þeirra Alberts Guðmundssonar og Geirs Hallgrímssonar alþingismanna úr Sjálfstæðisflokknum. Fyrir ofan stendur með rauðum og bláum stöfum: NOTIÐ VERJUR - það fæðist íhaldsmaður daglega! Ætla má að merkið hafi verið framleitt af einhverjum vinstriflokkanna eða ungliðahreyfingum þeirra. Merkið er væntanlega frá því í kringum 1980. (Þvm. 3,2 cm).
- Hringlaga barmmerki, bleikt á lit með ljósari og hvítri áletrun: xV, sem er listabókstafur Vinstrihreyfingarinnar græns framboð („Vinstri grænna“). Hreyfingin var stofnuð í febrúar árið 1999 af nokkrum þingmönnum Alþýðubandalags sem ekki vildu ganga í Samfylkinguna við stofnun hennar. (Þvm. 3,7 cm).
- Hringlaga barmmerki, samskonar og það síðasttalda, en ljósgrænt á lit. (Þvm. 3,7 cm).
- Lítið, hringlaga barmmerki, grænt að lit með ljósari og hvítri áletrun: xV, sem er listabókstafur „Vistri grænna“, sbr. tvö síðasttalin merki. (Þvm. 2,5 cm).
- Fremur stórt, hringlaga barmmerki á hvítum grunni en með áletrun í rauðum, grænum og svörtum litum. Á því er merki Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs, með rauðu stendur xU og fyrir neðan er nafn flokksins. Merkið er að öllum líkindum frá því fyrir Alþingiskosningar 1999, en þá var listabókstafur hreyfingarinnar U, en varð síðar V (sbr. þrjú ofantalin merki). (Þvm. 5,6 cm).
- Hvítt, hringlaga barmmerki með rákum í gulum, rauðum, grænum og bláum lit („regnbogi“) og xR sem var listabókstafur R-listans, sameinuðu framboði vinstrimanna í Reykjavíkurborg: Alþýðuflokks, Alþýðubandalags, Framsóknarflokks og Kvennalista. R-listinn var stofnaður fyrir borgarstjórnarkosningar árið 1994. Tilgangurinn var að fella borgarstjórn Sjálfstæðisflokks sem þá hafði setið við völd í borginni í nokkur kjörtímabil. R-listinn sigraði kosningarnar það árið og sat við völd í borginni til vors 2006. Fyrir þær kosningar slitnaði uppúr samstarfinu og Framsóknarflokkurinn, og Vinstri hreyfingin grænt framboð klufu sig frá R-listanum. Þá hafði Samfylkingin verið stofnuð og framboð flokkanna var því aðskilið. Barmmerkið er að öllum líkindum frá 1994, stofnári R-listans. (Þvm. 3,8 cm).
- Hvítt, hringlaga barmmerki með áletrun í fjölda lita: xR ...til hamingju í Reykjavík! R var listabókstafur R-listans (Reykjavíkurlistans). Um framboðið sjá skráningu á síðasta merki hér að ofan. Ætla má að merkið hafi verið framleitt í kjölfar þess að listinn náði völdum í borginni eftir kosningar vorið 1994. (Þvm. 3,8 cm).
Gefandi er Guðrún Jarþrúður Baldvinsdóttir, Bergstaðastræti 26 í Reykjavík.
Aðrar upplýsingar
Ártal
1980 - 2007
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2008-4-1
Stærð
6.4 x 0 cm
Lengd: 6.4 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Barmmerki, + hlutv.
