Verskrína
1800 - 1900

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Verskrína. Kistill úr furu, festur saman með trénöglum, lok yfir, sem snýst um tvennar járnhjarir, skráarlæsing, en á göflum báðum megin handfang á ská. H. 42 sm, l. öll um 67 sm, br. 25.3 sm og mest þ. fjala 3.2 sm. Í loki eru tvær fjalir langsum og naglar milli, hækkar það við miðbik og þar flati á langveg, en skör allt umhverfis, ein fjöl í göflum, í framhlið og baki tvær, felldar saman, og botn eins. Handföng úr spík (?), l. 30.1 sm og 30.6 sm, breikka þau að miðju og þar bugða, og við hana gert gat, kringlótt, kinna á milli, 3 sm á vídd, sneitt er af endum og við langbrúnir úrtök. Bil milli hjara á skrínunni um 31.5 sm. Frá þeim liggja stuttar áfellur á loki að innan og á baki, festar með skrúfum úr járni. Skrá við miðju að framan, felld í að innanverðu, hún með blikkhlíf, sem skrúfuð er og negld, l. 9.1 sm og br. 5.5 sm, en andspænis á lokbrún neglt járnbendi, 8.5 sm á l., með tveimur sneisum, er ganga í göt í skrá. Lykill úr blikki fylgir. All traustleg smíð. Skrínan með sprungum og úr hefur kvarnazt, rispuð, tálagð upp úr, blettir víða og járn ryðgað. Ekki fellur lok þétt að. Frá Eyvindarholti. Sbr. Sjóminjasafn.
Aðrar upplýsingar
Ártal
1800 - 1900
Efni
Tækni
Safnnúmer
Safnnúmer B: 1958-127
Stærð
42 x 67 x 25.3 cm
Lengd: 42 Breidd: 67 Hæð: 25.3 cm
Staður
Staður: Eyvindarholt, 861-Hvolsvelli, Rangárþing eystra, Undir Eyjafjöllum, Ísland
Sýningartexti
Verskrína frá 19. öld, sem sjómenn báru í færur sínar í verið, fataplögg og matvæli, svo sem smjör og kæfu. Úr eigu Ólafs Ólafssonar b. í Eyvindarholti undir Eyjafjöllum, áður í Dalseli.
1958-127
Verskrína, sem vermenn höfðu með sér í verið meðan róið var á opnum skipum og báru í fatnað sinn og matvæli. Frá 19. öld.
1958-127
Spjaldtexti:
Verskrína, notuð til þess að geyma í matvæli sem fiskimenn höfðu með sér að heiman, aðallega kæfu og smjör.
Fisherman’s food chest, containing food supplies brought from home, usually butter and meat pâté, kæfa.
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Verskrína
Upprunastaður
63°38'55.7"N 19°56'22.8"W





