Hólkur, óþ. notk.

Hringur úr eir, kúptur, 3,2 - 3,3 cm í þvermál, 1 cm á breidd, en breikkar til beggja hliða á einum stað og er þar 2,1 cm breiður. Á þessu breiða bili er ferhyrnt gat, 1 cm á hlið. Hringurinn er ógrafinn. Hann minnir mikið á fingurhring, en er alltof stór til að vera það, og mun því fremur vera hólkur af einhverju. Eftirfarandi uppl. eru skv. eftirfarandi bréf sem límt er inn í safnskrána: Þessi hringur er fundinn í landi jarðarinnar Austur-Skálanes í Vopnafjarðarhreppi 10. október 1927, ég var að grafa brunn og dýptin var 1 metr og 8 sentim. Landið var mólendi milli tveggja kletta. Fyrstu 50 cm. niður var mold þá tók við fremur smágerð möl leirblandin. Vopnaf. 13/3 1938 Jón Höskuldsson

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
Safnnúmer A: 12389 Safnnúmer B: 1938-54
Stærð
3.3 x 0 cm Lengd: 3.3 cm
Staður
Staður: Eystra-Skálanes, 690-Vopnafirði, Vopnafjarðarhreppur, Vopnafjörður, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Fundaskrá Undirskrá: Fundaskrá_Lausafundir
Efnisorð / Heiti