Þynna, óþ. hlutv.
900 - 1100

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Lítið brot úr bronsi, 6 sm. á lengd og 4 sm. á breidd: það er líkast í lögun járnþynnuum þeim , sem settar eru til hlífðar á horn á kössum og koffortum, og myndar því nær rétt horn í hrygginn. Göt eru á því til jaðranna og standa enn eptir í þeim 3 járnnaglar og 2 eirnaglar. Skörð eru hér og þar upp í aðra hliðina en hin er slétt. Hlutur þessi er fundinn í sama dysi og nistið Nr. 4340 hjá Vaði í Skriðdal, en ekki er auðvelt getum um að leiða, úr hverju hann sé, hugsamlegt er að þar sem sagt er að sverð hafi fundist í þessu sama dysi, að þetta kynni að vera leifar af sverðskeiðum, en um þar er ekkert hægt að fullyrða að svo komnu máli, meðan ekkirt finnst meira af samskonar eða líkum hlutum annarsstaðar. Með broti þessu fylgir lítill trékubbur eða flaga, sem hafði legið innan í plötunni, þegar hún fannst.
Aðrar upplýsingar
Gefandi: Jón Helgason
Ártal
900 - 1100
Efni
Tækni
Safnnúmer
Safnnúmer A: 4341
Safnnúmer B: 1896-119
Stærð
6 x 4 cm
Lengd: 6 Breidd: 4 cm
Staður
Staður: Vað, 701-Egilsstöðum, Múlaþing, Skriðdalur, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Fundaskrá_Munir
Undirskrá: Fundaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Þynna, óþ. hlutv.
Upprunastaður
65°6'28.0"N 14°35'44.8"W
