Göngustafur

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Göngustafur.
Göngustafur, smíðaður
úr brenni, nýsilfurbúinn, lagið venjulegt. Er hann 84,5 cm á l., mest br.
um 10,5 cm, en þ. mest 5,7 cm. Húnninn, úr nýsilfri, er felldur ofan á
legginn, l. þessa hluta tæpl. 20,5 cm, endi að aftan klofinn við miðju
og sveigjast báðar hefltirnar út, bönd, upphleypt og grafin, gerð umhverfis
og að framan er lagið margstrent. Um 19 cm langt var úr sama efni er á
stafnum að neðan, með böndum umhverfis, gröfnum og upphleyptum og gengur
fram úr því broddur úr kopar og stáli, 4,9 cm á l. Grafið er ofan á hún:
„Runólfur Þórðarson“.
Sjá má sprungur og dældir á nýsilfrinu,
varið á staf að neðan er illa fast og á húni eru á beygju að framan nokkrar
leifar kveikingar.
Aðrar upplýsingar
Efni
Safnnúmer
Safnnúmer A: Á-247
Stærð
84.5 x 10.5 x 5.7 cm
Lengd: 84.5 Breidd: 10.5 Hæð: 5.7 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Ásbúðarsafn (Á)
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Göngustafur