Göngustafur

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Göngustafur.
Göngustafur, úr furu,
af venjulegri gerð. L. hans 82,5 cm, br. mest um 12 cm, mest þ. 3,6 cm.
Húnn og leggur í tvennu lagi, og útlitsmunur er á viðinum, hólkur úr kopar,
l. hans 10 cm, festur með tveimur koparnöglum, er yfir samskeytum. Rákir
eru grafnar umhverfis á húni, skáhallt, leggurinn með áttstrendu lagi efst,
annars staðar sívalur, í enda að neðan er rekinn broddur úr járni og þar
sett koparver. Viður gljáborinn.
Greina má sprungur, gert hefur
verið við hún, ryð er á járninu, kopar all dökkur og viður og gljáhúð farin
að eyðast..
Staf þennan átti Árni sýslumaður
Gíslason.
Aðrar upplýsingar
Efni
Safnnúmer
Safnnúmer A: Á-244
Stærð
82.5 x 12 x 3.6 cm
Lengd: 82.5 Breidd: 12 Hæð: 3.6 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Ásbúðarsafn (Á)
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Göngustafur