Ljósmynd, með ramma

Í kringum 1993 - 2002, Kristján Jóhannsson
Árituð mynd í ramma. Myndin er af Kristjáni Jóhannssyni þegar hann fór með hlutverk í óperunni Il Trovatore, líklega frá 1993, í Metropolitan Operu. Hann söng þar eitt af aðal hlutverkunum. Myndin er árituð til Helgu Alfreðsdóttur, en hún og Kristján sungu saman dúetta á fyrstu árum söngferils Kristjáns. Á myndinni stendur handskrifað með gylltum penna: Kæra Helga Með vináttu og minningu um minn fyrsta Manrico með þér Kristján Jóhannsson. Prentað er á myndina neðan til á hvítum borða undir mynd með prentstöfum: Kristjan Jóhannsson ´´Il Trovatore´´ Metropolitan Opera Winnie Klotz. Myndin er í rauðbrúnum viðarramma með gleri.

Aðrar upplýsingar

Ártal
Áætlaður aldur frá: Í kringum 1993 - 2002
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2025-15
Stærð
30 x 24 x 1 cm
Aðfangategund
Áletrun / Áritun
Áritun: Kæra Helga Með vináttu og minningu um minn fyrsta Manrico með þér Kristján Jóhannsson Áletrun: Kristján Jóhannsson Il Trovatore. Metropolitan Opera Winnie Klotz
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Ljósmynd, með ramma
Efnisorð:
Ljósmynd, skráð e. myndefni
Myndefni:
Óperusöngvari
Myndefni:
Söngvari
Myndefni:
Eiginhandaráritun
Efnisorð:
Ópera