Innkaupataska

Brún innkaupataska með haldi. Er úr e.k. plastefni en haldið er úr leðurefni. Hægt er að draga opið saman með snúru. Taskan er með merki og ártali : KEA 1886-1956, staðsett við botn fyrir miðju. Á hinni hliðinni er vasi sem hægt er að smella til að loka. Frá föður gefanda, Jóhannes Hermundarson, fæddur 1879.

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
Safnnúmer B: 2026-10
Stærð
45 x 28 x 13 cm
Aðfangategund
Áletrun / Áritun
Áletrun: KEA 1886 1956
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Innkaupataska
Myndefni:
Merki, fyrirtækis