Munir

Varðveitt hjá
Byggðasafnið Skógum
Innrömmuð sv/hv ljósmynd. "Skipað upp efni á Svan í Dyrhólaeyjarvitann árið 1927." Skipshöfn f.v. með böndin Þorsteinn Gunnarsson Ketilsstöðum og Daníel Guðbrandsson Loftsölum, utanundir Salómon Sæmundsson Ketilsstöðum, Sverrir Ormsson Kaldrananesi og Jón P. Scheving Vatnsskarðshólum, í andófi Jón Guðmundsson Norðurgarði og Þórður Þorláksson Hryggjum, miðskips Sigurjón Runólfsson Haugi og Eyjólfur Jakobsson Dyrhólum, í austurrúmi Þorsteinn Pétursson Rauðhálsi og Guðmundur Eyjólfsson Brekkum, á bitanum Pétur Jakobsson Fjósum, í skut Guðbrandur Þorsteinsson Loftsölum, við skipið Sigurður B. Gunnarsson Steig, formaður þegar þessi mynd er tekin. Í landvinnu Vigfús Scheving, Vatnsskarðshólum. Hundurinn Tryggur, eigandi Jón Guðmundsson Norðurgarði. Myndina tók Magnús Þórðarson Neðradal. Gefendur: Leifur og Guðrún Erlendsbörn 1992.

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
Safnnúmer A: S-3423
Stærð
41,7 x 55 cm
Staður
Staður: Dyrhólaeyjarviti, 871-Vík, Mýrdalshreppur, Mýrdalur, Ísland
Aðfangategund

Upprunastaður

63°24'8.4"N 19°7'51.3"W