Sjalprjónn

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: "1324. Sjalprjónn. Þennan sjalprjón átti síðast ungfrú Rósa Hjartardóttir í Þórlaugargerði. Foreldrar hennar voru bóndahjónin í Þórlaugargerði, Hjörtur Jónsson og kona hans frú Guðríður Helgadóttir frá Gerði. Hjörtur bóndi var sonur Jóns beykis Jónssonar prests Austmanns að Ofanleiti. – Hjörtur Jónsson beið bana, er hann hrapaði í Hellisey 23. ágúst 1883. Síðar giftist móðir Rósu Einari Sveinssyni, sem þá gerðist bóndi í Þórlaugargerði. Sonur þeirra var m.a. Hjörtur Einarsson, sjómaður á Geithálsi (nr. 2) við Herjólfsgötu. Rósa Hjartardóttir heimasæta erfði sjalprjóninn eftir langömmu sína, frú Þórdísi Magnúsdóttur á Ofanleiti, konu séra Jóns Austmanns Jónssonar, sóknarprests. "

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
1324
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Sjalprjónn
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.