Reykjarpípa

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: "1292. Reykjarpípa með skrúfuðu loki, mjög óvenjuleg að gerð. Hún á sína sögu. Árni Árnason á Vilborgarstöðum, sem fórst með sexæringnum Gauk árið 1874, fékk eitt sinn þessa pípu hjá frönskum sjómönnum um 1870 fyrir vettlinga, sem hann seldi þeim. Á vissum tímum árs stunduðu Fransmenn færaveiðar á miðunum í nánd við Vestmannaeyjar á fyrri öld og voru þá viðskipti Eyjasjómanna við þá ekki sjaldgæft fyrirbrigði. Pípu þessa eignaðist Árni Árnason tómthúsmaður á Grund (nr. 31) við Kirkjuveg eftir föður sinn. Árni símritari Árnason, sonur Árna á Grund, erfði pípuna eftir föður sinn, og gaf hana Byggðarsafninu. "

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
1292
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Reykjarpípa
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.