Blásturshorn, sem hljóðfæri

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: "1218. Bassahorn. Brynjúlfur Sigfússon frá Litlu-Löndum eða Vestri-Löndum við Landagötu, organisti við Landakirkju og söngstjóri um tugi ára, stofnaði fyrstu lúðrasveitina hér í Eyjum árið 1906. Hann stjórnaði þessari hljómsveit sinni um árabil. Almenningur hér kallaði hana ,,Hornaflokkinn”. Hljómsveitarstjórinn spilaði sjálfur á þetta bassahorn, sem þá var í daglegu tali nefnt ,,túba” að erlendum hætti. Bassahorn þetta lá sem hvert annað rusl um tugi ára á ónefndu hanabjálkalofti hér í bænum og einskis metið. Loks barst það Byggðarsafninu (Sjá Blik 1967, bls. 176)."

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
1218
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.