Nafnskilti, + hlutv.

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar:
"1196. Svanur. Þetta er nafnskiltið af hinum nafnkunna áttæring hér í Eyjum á síðari hluta 19. aldarinnar. Áttæringurinn Svanur var smíðaður árið 1868. Eigendur voru þá þrír: Guðmundur Erlendsson í London (nr. 3) við Miðstræti, Jón Vigfússon, bóndi og smiður í Túni, og Lárus Jónsson, bóndi og hreppstjóri á Búastöðum.
Fyrstu sjö árin var Guðmundur Erlendsson formaður á bátnum eða til dánardægurs 1875. Eftir það voru þessir kunnu Eyjamenn formenn á Svan: Jón bóndi Vigfússon í Túni, Guðjón Jónsson, formaður í Sjólyst (nr. 41) við Strandveg, og síðast Ástgeir Guðmundsson, bátasmiður, Litlabæ. Áttæringur þessi var gerður út hér fram yfir síðustu aldamót eða milli 30 og 40 ár. Þá var hætt að stunda á honum fiskveiðar eins og öðrum áraskipum hér, þar sem vélbátaútvegurinn ruddi sér svo mjög til rúms. Svanur var eftir það notaður mikið til flutninga á fé milli Heimaeyjar og Úteyja. Þau urðu örlög nokkurra fleiri hinna opnu skipa í Eyjum, eftir að vélbátaútvegurinn ruddi sér til rúms á fyrsta tug aldarinnar.
Nafnskilti þetta gaf Byggðarsafninu frú Anna Eiríksdóttir frá Vegamótum (nr. 4) við Urðaveg, dóttir Eiríks Hjálmarssonar, kennara. "
Aðrar upplýsingar
Skrásetjari: Þorsteinn Þ. Víglundsson
Eigandi: Lárus Jónsson
Gefandi: Anna Eiríksdóttir
Eigandi: Jón Vigfússon
Gefandi: Guðmundur Erlendsson
Eigandi: Lárus Jónsson
Gefandi: Anna Eiríksdóttir
Eigandi: Jón Vigfússon
Gefandi: Guðmundur Erlendsson
Safnnúmer
1196
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Nafnskilti, + hlutv.
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.