Göngustafur

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: "1181. Göngustafur. Þennan staf átti Ingimundur útvegsbóndi og hreppstjóri Jónsson á Gjábakka. Hann kvæntist Margréti heimasætu Jónsdóttur á Gjábakka árið 1858. Þau minntust 50 ára hjúskapar síns árið 1908. Þá gáfu Vestmannaeyingar þessum merka sam borgara sínum þennan göngustaf. Á hann er letrað: 1858-1908. Jón Stefánsson sjómaður í Mandal, dóttursonur hjónanna á Gjábakka, gaf Byggðarsafninu stafinn. "

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
1181
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Göngustafur
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.