Lukt, + hlutv.

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar:
"1155. Húslugt. Húslugtir voru svo að segja til á hverju heimili, áður en rafljósin komu til sögunnar og lýstu gangandi fólki. Sérlegt fyrirbæri við kirkjuferðir í Eyjum voru húslugtirnar, sem hver heimilisfaðir eða einstæður kirkjugestur hafði með sér, þegar gengið var til Landakirkju að kvöldlagi t.d. til aftansöngs. Húslugtunum var raðað í anddyri Landakirkju og voru þar þá iðulega í tugatali meðan hin kirkjulega athöfn átti sér stað.
Þessi húslugt er útlend, keypt í Verzlun Gísla J. Johnsen árið 1905. Hana átti um árabil Guðlaugur bóndi og formaður Jónsson í Gerði. "
Aðrar upplýsingar
Safnnúmer
1155
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Lukt, + hlutv.
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.