Brennimark

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: "1043. Brennimark: H.S. Brennimark þetta átti Högni bóndi Sigurðsson í Vatnsdal (nr. 30) við Landagötu. Högni var sonur Sigurðar Sigurfinnssonar hreppstjóra á Heiði og fyrri konu hans frú Þorgerðar Gísladóttur, sem kennd var við tómthúsið Skel, eftir að þau hjónin skildu samvistir. Högni var barnakennari á Norðfirði fyrir og um aldamótin síðustu á eigin vegum og barnakennari hér í fæðingarsveit sinni veturna 1904-1908. Þá gerðist hann íshússtjóri Ísfélags Vestmannaeyja og stjórnaði þar fyrstu frystivélum, sem keyptar voru til landsins. (Sjá Blik 1963, b1s.163-181)."

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
1043
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Brennimark
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.