Sjónauki

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: "1023. Sjónauki. Þessi sjónauki fannst fyrir nokkrum árum undir yfirborði jarðar austur á Skansi. Kunnugir Eyjabúar verzlunarstjórahjónunum í Danska-Garði, Antoni Bjarnasen, faktor, og konu hans frú Sigríði Guðmundsdóttur, telja, að þau hafi átt þennan kíki, því að þau höfðu iðulega yndi af að fylgjast með ferð skipa og báta um höfnina. Til þess höfðu þau líka góða aðstöðu, þar sem þau bjuggu austur við Skansinn. Gísli Eiríksson, þá verkstjóri í Eyjum, fann sjónaukann og gaf þann Byggðarsafninu. "

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
1023
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Sjónauki
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.