Skrifpúlt

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: "1010. Skrifpúlt. Það er smíðað úr harðviði. Oftast höfðu menn þessi litlu skrifpúlt á hnjám sér, þegar skrifað var á þeim. Þægilegt þótti, að geyma pappír og ritföng í púltum þessum. Frú Sesselja Ingimundardóttir á Gjábakka mun hafa erft þetta skrifpúlt eftir föður sinn, Ingimund Jónsson bónda og hreppstjóra. Hann mun hafa smíðað það sjálfur og notað það um árabil. Ingimundur hreppstjóri lézt árið 1912. Frú Sesselja gaf síðan Berent Sveinssyni Sigurhanssonar frá Brimnesi í Eyjum skrifpúlt þetta, og hann gaf það Byggðarsafninu. "

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
1010
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Skrifpúlt
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.