Budda

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar:
"991. „Budda” , prjónaður ,peningapungur”, enskur að lögun og gerð. Peningapung þennan átti Gísli bóndi Eyjólfsson á Búastöðum, faðir Eyjólfs fyrrv. skipstjóra í kaupstaðnum, og frú Lovísu húsfr. á Búastöðum. Góðviðrisdag einn árið 1896 var Gísli bóndi Eyjólfsson á skaki suður af Súlnaskeri.
Þar setti hann í vænan þorsk. Þegar hann hafði bylt honum inn í bátinn, féll þessi hlutur úr gini hans. Okkur er tjáð, að enskir togarasjómenn hafi oft sézt handleika þessa prjónuðu ,,peningapunga”, þegar þeir komu í íslenzka höfn til kaupa á síðari hluta síðustu aldar. Eyjólfur Gíslason skipstjóri gaf Byggðarsafninu ,budduna”."
Aðrar upplýsingar
Safnnúmer
991
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.