Brúðarklæðnaður

Varðveitt hjá
Sagnheimar
Úr skrá Þorsteins Þ Víglundssonar: "952. Brúðarklæðnaður. Þennan hátíðarklæðnað saumaði frú Ragnhildur Þórarinsdóttir, kona Gísla Engilbertssonar verzlunarstjóra í Júlíushaabverzlun, þegar þau giftust árið 1868. Þá var hún 24 ára (f. 19. október 1844). Síðan var viðhafnarbúningur þessi hátíðarbúningur frúarinnar um tugi ára og oft lánaður brúði við giftingarathöfn. Frú Ragnhildur Þórarinsdóttir „í Júlíushaab” gaf á sínum tíma dótturdóttur sinni, frú Þórhildi Þorsteinsdóttur, prófastsfrú að Breiðabólstað í Fljótshlíð, þennan hátíðarklæðnað.Hún gaf hann síðan Byggðarsafninu (25. ágúst 1960). "

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
952
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Minjaskrá Þorsteins Þ. Víglundssonar Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Heimildir
Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja með nokkrum sögulegum skýringum eftir Þorstein Þ Víglundsson.